Við sérhæfum okkur í sérsmíðuðum lausnum sem eru sniðnar að þínum þörfum. Hvort sem þú ert með ákveðna hugmynd eða þarft aðstoð við útfærslu leggjum við metnað í vönduð handverk og skýrar lausnir.

Kriya

Kriya er hönnunarvörumerki undir TT Verk. Kriya byggir á samspili hönnunar og smíði þar sem áhersla er lögð á vandað handverk, rétt efnisval og traustan frágang. Notagildi og ending eru höfð að leiðarljósi í allri vinnu.

Áherslan er lögð á að hanna vandaðar vörur út frá lausnum sem byggja á raunverulegri notkun, íslenskum aðstæðum og virðingu fyrir efnum og vinnuferli. Verkefnin eru mótuð af aðstæðum, tilgangi og því hvernig lausnirnar eiga að nýtast hverju sinni.

Með vörumerkinu Kriya viljum við gefa hönnun og handverki meira rými. Leyfa hlutunum að vera heiðarlegir, einfaldir og vel gerðir.