Þegar dagarnir lengjast og sólin fer að láta sjá sig kviknar hjá mörgum löngunin til að nýta útirýmið betur. Vel hannaður sólpallur er ekki aðeins framlenging á húsinu heldur rými sem mótar upplifun garðsins í heild.

Sólpallur með burðargrind fyrir heitan pott

Pallasmíði sem tekur mið af íslenskum aðstæðum

Á Íslandi þarf pallasmíði að taka mið af krefjandi veðurfari. Miklar hitasveiflur, raki og vindur gera kröfur um rétt efnisval, vandaða burðargrind og góða frágangsaðferðir. Rétt uppbygging tryggir að pallurinn haldi lögun sinni, verði öruggur til notkunar og endist um árabil með lágmarks viðhaldi.

Efnisval, hæð, frágangur og tenging við hús eða garð eru allt atriði sem skipta máli þegar kemur að endingu og notagildi. Lausnir sem henta íslenskum aðstæðum geta skipt sköpum til lengri tíma.

Frá hugmynd að veruleika

Smíði sólpalls hefst á samtali. Þar er farið yfir þarfir, óskir og drauma viðskiptavinarins. Hvernig pallurinn á að nýtast, hvort hann eigi að tengjast heitum potti, sánu/saunu eða skjólveggjum og hvernig hann fellur best að garðinum og húsinu.